Skip to main content

Rangfærslur í Silfrinu 23. október 2023

Eftir október 25, 2023Fréttir

Stjórn Flugfreyjufélags Íslands mótmælir þeim rangfærslum sem viðhafðar voru í Silfrinu á mánudagskvöld 23. október síðastliðinn og sér sig knúna til að leiðrétta.

Birgir Jónsson forstjóri Play gaf í skyn að FFÍ væri gult stéttarfélag undir hatti Icelandair og staðhæfði að Icelandair væri eini viðsemjandi stéttarfélagsins.

Flugfreyjufélag Íslands er sjötíu ára gamalt stéttarfélag og eina stéttarfélag flugfreyja og -þjóna á Íslandi. Félagið hefur staðið að samningagerð fyrir hönd félagsmanna sinna sem hafa unnið hjá hinum ýmsu flugfélögum og flugrekendum á Íslandi, má þar nefna: Flugleiðir, Loftleiðir, Icelandair, Flugfélag Íslands, Arnarflug, Íslandsflug, Iceland Express, Wow air og Niceair.

Play er eitt fárra flugfélaga sem hefur ekki liðkað fyrir veru sinna flugfreyja og -þjóna innan banda FFÍ heldur farið þá leið að semja sjálft við sína starfsmenn undir formerkjum Íslenska flugstéttafélagsins (ÍFF) og situr þar með beggja vegna borðsins.

Play er þar með ekki að fylgja leikreglum sem almennt eru viðhafðar á íslenskum vinnumarkaði. Þetta veit Birgir Jónsson mætavel og því furðar stjórn FFÍ sig á þeim fullyrðingum sem komu frá honum í Silfrinu.

Stjórn FFÍ fagnar því að Birgir hafi í þættinum lýst yfir rétti kvennastétta til mannsæmandi launa og hvetur því Birgi eindregið til að endurskoða sína afstöðu og liðka fyrir innkomu sinna flugfreyja og -þjóna í FFÍ og hefja undirbúning að kjarasamningsviðræðum þar sem hag þeirra er best borgið.