Helstu styrkir
Allir forvarna- og endurhæfingastyrkir eru háðir ávinnslurétti
Allir forvarna- og endurhæfingastyrkir eru háðir ávinnslurétti sem þýðir að félagsmaður þarf að hafa greitt iðgjöld í jafn marga mánuði og millibil milli styrkja segir til um. Sem dæmi er gleraugnastyrkur veittur með 36 mánaða millibili.
Einnig er rétt að árétta að aldrei er styrkt um hærri upphæð en 80% af útlögðum kostnaði (gildir ekki um krabbameinsskoðanir).
Helstu forvarna- og endurhæfingastyrkir skv. 13. grein reglugerðar sjóðsins:
- Krabbameinsskoðun (legháls- og brjóstakrabbameinsskoðanir, 5000.- krónur fyrir skiptið og 10.000.- krónur fyrir framhaldsskoðun)
- Krabbameinsskimun í ristli (hámark 25.000 kr. á 60 mán.)
- Krabbameinsskimun í blöðruhálskirtli (hámark 20.000 kr. á 48 mán.)
- Húðkrabbamein/blettaskoðun (hámark 6500 kr. fyrir hvert skipti)
- Sjúkraþjálfun, nudd, sjúkranudd, heilsunudd, hnykk- og nálastungulækningar, kírópraktor, osteópata, höfuðbeina- og spjaldshryggsmeðferð (helmingur upphæðar sem greidd var fyrir meðferðartíma, hámark 60.000 kr. á hverjum 12 mán.)
- Sálfræði-, félags- og fjölskylduráðgjöf (helmingur upphæðar sem greidd var fyrir meðferðartíma, hámark 60.000.- á hverjum 12 mán.)
- Endurhæfing á heilsustofnun (2000 kr. á dag í allt að 4 vikur á hverjum 48 mán., hámarksendurgreiðsla er 56.000 kr.)
- Glasa-, smásjár- og tæknifrjóvgun (má styrkja tvö skipti, hámark er 60.000 kr. fyrir hvort skipti)
- Ættleiðing (má styrkja eitt skipti, hámark er 50.000 kr.)
- Laser/lasik augnaðgerð (heimilt að styrkja einu sinni fyrir hvort auga, hámarksupphæð er 60.000 kr. fyrir annað augað eða 120.000 fyrir bæði augun samtímis)
- Augnsteinaaðgerð (heimilt að styrkja einu sinni fyrir hvort auga, hámarksupphæð er 60.000 kr. fyrir annað augað eða 120.000 fyrir bæði augun samtímis)
- Gleraugu (heimilt að styrkja einu sinni á hverjum 36 mán., hámarksupphæð er 60.000 kr.)
- Heyrnartæki (heimilt að styrkja einu sinni á hverjum 48 mán., hámarksupphæð er 60.000 kr. fyrir hvort eyra eða 120.000.- kr. fyrir bæði eyru)
- Linsur (heimilt að styrkja einu sinni á hverjum 24 mán., hámarksupphæð er 10.000 kr.)
- Stoðkerfisaðgerð (hámarksupphæð er 50.000 kr.)
- Æðahnútaaðgerð (hámarksupphæð er 35.000 kr.)
- Fótaaðgerð (heimilt að styrkja tvær aðgerðir á hverjum 12 mán., hámarksupphæð er 7000 kr. fyrir skiptið)
- Sjúkrasokkabuxur og sjúkrasokkar (heimilt að greiða kaupverð einu sinni á hverju 24 mánaða tímabili, hámarksupphæð er 16.500 kr. )
- Áfengis- og vímuefnameðferð (heimilt að styrkja einu sinni. Er háð því að styrkur eða greiðsla komi ekki annars staðar frá. Hámarksupphæð er 30.000 kr.)
- Dánarbætur (heimilt að greiða allt að 200.000 kr. vegna andláts barns sjóðfélaga undir 22 ára aldri)


