Orlofssjóður Flugfreyjufélags Íslands á og rekur þrjú orlofshús; í Húsafelli, í Holtalandi á Akureyri og að Syðri-Brú í Grímsnesi.
ATH að gæludýr eru eingöngu leyfð í orlofshúsi félagsins í Húsafelli.
Húsið í Húsafelli er búið öllum helstu heimilistækjum, útihúsgögnum, grilli og heitum potti.
Í bústaðnum eru þrjú svefnherbergi og svefnaðstaða fyrir 7 manns, 4 -5 fullorðna og 2-3 börn/unglinga. Í hjónaherbergi er rúm í queeen stærð (153×203 cm). Í stærra kojuherbergi er rúm í stærð 140×200 cm rúm og einbreið 90×200 efri koja. Í minna kojuherbergi er neðra rúm í stærð120×190 cm og einbreið 80 x190 cm koja fyrir ofan. 7 sængur og 7 koddar eru til staðar sem og barnarúm. Taka þarf með sér allan sængurfatnað, lök og handklæði.
Ljósleiðari er í húsinu og áskriftargjaldið er greitt af FFÍ. Gagnamagn er ótakmarkað. Upplýsingar um aðgang og lykilorð eru við sjónvarpið. Athugið að ef pöntuð er áskrift að t.d Sýn+ þá er hún ekki greidd af FFÍ. Leigjandi verður rukkaður um þann kostnað.
Ef gasið fyrir grillið klárast má setja tóma kútinn upp í nýjan á næsta sölustað. Munið að taka greiðslukvittun og senda hana til FFÍ ([email protected]) fyrir endurgreiðslu.
Ef þú tekur eftir að hreinsiefni eða annað sem á að vera til staðar er að klárast, er eitthvað er bilað, óhreint eða virkar ekki sem skyldi væri gott að þú létir umsjónaraðila hússins vita (vinsamlega athuga fyrst hvort auka birgðir eru í þvottahúsi/úti geymslu).
Því miður er þrifþjónusta ekki í boði Í Húsafelli.

Húsið stendur við Holtaland 8 í Hálöndum, svæði ofan byggðar við Hlíðarfjall. Húsið er sérbýli með frábæru útsýni.
Húsið er útbúið 3 svefnherbergjum með 2 tvíbreiðum og 2 einbreiðum rúmum auk 2ja dýnukubba.
Húsið er búið öllum helstu heimilistækjum, útihúsgögnum og grilli.
Í húsinu er pottur inni/úti og öll aðstaða til fyrirmyndar. Aðstaða til geymslu á skíðum og fatnaði í geymslu.
Ljósleiðari er í húsinu og áskriftargjaldið er greitt af FFÍ. Gagnamagn er ótakmarkað. Upplýsingar um aðgang og lykilorð eru við sjónvarpið.
Athugið að ef pöntuð er áskrift að t.d Sýn+ þá er hún ekki greidd af FFÍ. Leigjandi verður rukkaður um þann kostnað.
Hægt er að leigja rúmfatnað, handklæði og kaupa þrif eftir dvöl hjá umsjónaraðila á slóðinni https://mundiafi.is/collections/all. Frekari upplýsingar s. 820-4802. Munið að taka fram eign og dagsetningar. Gott er að panta með fyrirvara.
Ef gasið fyrir grillið klárast má setja tóma kútinn upp í nýjan á næsta sölustað. Munið að taka greiðslukvittun og senda hana til FFÍ ([email protected]) fyrir endurgreiðslu.
Eftir þrif má skilja tuskur eftir á gólfinu við þvottavél en umsjónaraðili tekur þær áður en næsti leigjandi tekur við húsinu.

Bústaðurinn er í Grímsnesi, við veginn er skilti sem á stendur Syðri -Brú frístundabyggð.
Í húsinu er sími í eigu FFÍ fyrir leigjendur til að opna hlið fyrir gestum. Einungis má nota símann til að opna hlið.
Húsið er á tveimur hæðum og er búið öllum helstu heimilistækjum, útihúsgögnum, grilli og heitum potti.
Fjögur herbergi eru í húsinu og eru rúm í queen stærð (153×205 cm) eru í öllum herbergjum auk tveggja dýnukubba. Taka þarf með sér allan sængurfatnað, lök og handklæði. Sængur og koddar eru fyrir 10 manns.
Lyklar að orlofshúsinu eru í lyklaboxi á Stórhöfða 29 (inngangur A), þar eru lyklahús. Lyklahúsin eru 3 talsins og staðsett vinstra megin við aðalinnganginn á Stórhöfða 29 (neðri röðin, undir 5 gráum lyklahúsum). Númer til að opna lyklabox er í leigusamningnum.
Það eru eins lyklasett í öllum þremur lyklahúsum FFÍ en aðeins má taka eitt lyklasett með sér. Á kippunni eru húslykill og fjarstýring að hliðinu. Vinsamlega skilið lyklunum aftur í lyklahús FFÍ eins fljótt og kostur er að dvöl lokinni.
Ljósleiðari er í húsinu og áskriftargjaldið er greitt af FFÍ. Gagnamagn er ótakmarkað. Upplýsingar um aðgang og lykilorð eru við sjónvarpið. Athugið að ef pöntuð er áskrift að t.d Sýn+ þá er hún ekki greidd af FFÍ. Leigjandi verður rukkaður um þann kostnað.
Ítarlegar leiðbeiningar er í þvottahúsi um heita pottinn, hvernig á að fylla hann og tæma. Mælt er með að lokið sé tekið alveg af á meðan verið er í pottinum og það lagt upp við skjólvegginn til hliðar. Það minnkar líkur á slysum.
Ef gasið fyrir grillið klárast má setja tóma kútinn upp í nýjan á næsta sölustað. Munið að taka greiðslukvittun og senda hana til FFÍ ([email protected]) fyrir endurgreiðslu.
Ef þú tekur eftir að hreinsiefni eða annað sem á að vera til staðar er að klárast, er eitthvað er bilað, óhreint eða virkar ekki sem skyldi væri gott að þú létir umsjónaraðila hússins vita (vinsamlega athuga fyrst hvort auka birgðir eru í þvottahúsi/úti geymslu).
Því miður er ekki þrifaþjónusta í boði.
Gámastöðvar fyrir rusl eru við Úlfljótsvatn og við Búrfellsveg (rétt við Hótel Grímsborgir, hinum megin við veginn á leiðinni að Þrastalundi frá húsi FFÍ. Ekið upp afleggjarann frá aðalveginum, gámarnir sjást á hægri hönd, ofarlega á hæðinni).
ATH. vinsamlegast virðið einkalóðir annarra orlofshúsa á svæðinu, t.d. eru leiktæki á öðrum lóðum ekki á vegum FFÍ.
Bókanir skulu berast í gegnum nýtt þjónstukerfi FFÍ – TÓTAL.
Innskráning er með rafrænum skilríkjum inn á Mínum síðum og þar má finna allar helstu upplýsingar um orlofshúsin.
Leiðbeiningarnar varðandi bókanir eru að finna hér: https://ffi.is/nytt-thjon, ustukerfi-tekid-i-notkun-leidbeiningar/


