Skip to main content

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um kjarasamning FFÍ og SA/Flugfélags Íslands ehf

Eftir febrúar 23, 2021mars 20th, 2023Fréttir

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna Flugfélags Íslands ehf. er lokið og niðurstöður rafrænna kosninga liggja fyrir.

Samningur hefur verið SAMÞYKKTUR.

Með þessu er viðræðum lokið og nýr kjarasamningur hefur tekið gildi.

Niðurstöður kosninga eru komnar í FFÍ appið ásamt viðhengi þar sem niðurstöður eru settar fram myndrænt ásamt skýringartexta.

Kjörstjórn

Stjórn og samninganefnd FFÍ fagna því að viðræðum sé lokið og þakkar félagsmönnum fyrir samstöðu og stuðning sem ríkt hefur meðal hópsins. Kjörsókn var einstaklega góð og sýnir það ábyrgð og áhuga félagsmanna á starfskjörum sínum og vinnuumhverfi.