Skip to main content

FFÍ býður í kaffi 1. maí

Eftir apríl 29, 2024Fréttir

Flugfreyjufélag Íslands slæst í hópinn með Fagfélögunum sem bjóða félagsfólki í kaffi þann 1. maí næstkomandi. Kaffið hefst að kröfugöngu lokinni klukkan 14:00 að Stórhöfða 29-31. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.

Flugfreyjufélagið og Fagfélögin óska vinnandi stéttum til hamingju með baráttudag verkalýðsins, 1. maí og vona að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í hátíðahöldunum.

Slagorð dagsins að þessu sinni er Sterk hreyfing – sterkt samfélag.

Nánari upplýsingar um dagskrá dagsins má sjá á heimasíðunni https://www.1mai.is/