Skip to main content

AÐALFUNDARBOÐ

Eftir maí 8, 2023Fréttir

 

Aðalfundur Flugfreyjufélags Íslands 2023 verður þriðjudaginn 16. maí og hefst kl. 18:00.

Það þarf að skrá mætingu með tölvupósti á ffi@ffi.is fyrir kl. 12.00 föstudaginn 12. maí.

Fundurinn verður á Stórhöfða 29 – 31 en nánari staðsetning ræðst af fjölda skráðra félagsmanna og verður auglýst síðar. 

 

Dagskrá aðalfundar

Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið ár
  2. Endurskoðaður ársreikningur félagsins lagður fram til afgreiðslu
  3. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs
  4. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara
  5. Kosning til annarra stjórna og ráða sem lög og reglugerðir félagsins gera ráð fyrir
  6. Lagabreytingar
  7. Siðareglur FFÍ
  8. Önnur mál

Ársreikningur félagsins og tillögur að breytingum á reglugerð sjúkrasjóðs eru í FFÍ appinu til skoðunar.   

 Kær kveðja,

Stjórn FFÍ