Kæru félagar
Tvö framboð hafa borist til kjörstjórnar FFÍ og hafa báðir listar verið samþykktir af kjörstjórn. Bæði framboðin hafa óskað eftir því að halda framboðsfund.
Framboðsfundur með báðum framboðum verður haldinn 24. apríl kl. 20:00 í húsnæði FFÍ í Hlíðasmára 15.
Meðfylgjandi eru framboðslistar og stefnuskrár framboðanna.
Framboðslisti og stefnuskrá A – Berglind Hafsteinsdóttir
Framboðslisti og stefnuskrá X – Anna Dís Sveinbjörnsdóttir
Hvetjum alla til að mæta og kynna sér framboðin.
Bestu kveðjur,
Kjörstjórn Flugfreyjufélags Íslands