
Skrifstofa FFÍ og Fagfélaganna – VM, RSÍ og MATVÍS – verður lokuð frá 20. júlí til 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 4. ágúst kl. 10:00.
Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til [email protected] eða [email protected] sé um kjaramál að ræða. Einnig minnum við á trúnaðaraðila félagsins en upplýsingar um þá er að finna á www.ffi.is og í FFÍ appinu.
Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa má senda tölvupóst til [email protected] eða [email protected]. Varðandi almennar fyrirspurnir vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma í leigusamningi þar sem m.a. má finna símanúmer umsjónaraðila.
Styrkir og sjúkradagpeningar: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berast fyrir 15. júlí í gegnum mitt.ffi.is.
Styrkir verða greiddir út 30. júlí og sjúkradagpeningar greiðast út 31. júlí. Umsóknir sem berast eftir 15. júlí greiðast út í lok ágúst.


