Skip to main content

Kjarasamningur felldur í atkvæðagreiðslu

Eftir júlí 8, 2020mars 23rd, 2023Fréttir

Kosningu um kjarasamning milli Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna Icelandair ehf. er lokið og niðurstöður rafrænna kosninga liggja fyrir.

Á kjörskrá voru 921. Atkvæði greiddu 786 eða 85,3 %.

JÁ sögðu 208 eða 26,46 %.

NEI sögðu 571 eða 72,65 %.

AUÐIR voru 7 eða 0,89 %.

Samningur hefur verið FELLDUR.

Kjörstjórn

Stjórn og samninganefnd FFÍ þakkar félagsmönnum fyrir samstöðu og stuðning sem ríkt hefur meðal hópsins síðustu mánuði. Kjörsókn var mjög góð og sýnir það ábyrgð og áhuga félagsmanna á starfskjörum sínum og vinnuumhverfi. Það að nýr kjarasamningur hafi verið felldur sýnir augljóslega að félagsmenn telja of langt gengið í þeim hagræðingarkröfum sem fólust í nýjum samningi. Stjórn og samninganefnd mun nú fara yfir málið og munum við mæta á fund ríkissáttasemjara þegar til hans verður boðað með ríkan samningsvilja líkt og áður.

Stjórn og samninganefnd FFÍ