
Golfmót Fagfélaganna verður haldið hjá Golfklúbbi Öndverðarness föstudaginn 12. júní 2026
Mæting er í síðasta lagi kl. 9:15 og ræst út af öllum teigum samtímis kl. 10.00
VEGLEG VERÐLAUN!
Leikin er punktakeppni með forgjöf og höggleikur. Forgjöf er að hámarki 24 punktar og 30 fyrir konur.
- Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppnikarla og kvenna og fyrsta sætið í höggleik karla og kvenna
- Flott nándarverðalun á fjórum par 3 holum, nánar tiltekið holum 2, 5, 15 og 18
- Sérstök verðlaun fyrir holu í höggi
- Verðlaun veitt fyrir lengsta drive á braut karla og kvenna á 7. holu
- Teiggjöf í upphafi móts og glæsilegar veitingar í boði Fagfélaganna í golfskálanum að móti loknu
Mótið er opið öllum golfurum í MATVÍS, RSÍ, FFÍ, SVG og VM og hvetjum við félagsfólk til þátttöku á einum glæsilegasta golfvelli landsins í Öndverðarnesi. Makar félaga eru velkomnir en eiga ekki rétt á mótsverðlaunum.
Vekjum sérstaka athygli á að boðið verður upp á rútu til og frá mótsstað, skráning í rútuna er í netfangið [email protected] – lagt af stað frá Stórhöfða 29-31 stundvíslega kl. 8:00
Mótsgjaldið kr. 9.500 sem greiðist við skráningu. Athugið að þar sem um lokað golfmót er að ræða er einungis hægt að skrá sig með því að smella hér:
Golfmót Fagfélaganna – skráning
Fyrir þau sem ekki eru í Golfboxinu má senda tölvupóst til [email protected] (gefa þarf upp nafn, gsm og síðustu skráðu forgjöf).
Skráningarfrestur er til miðnættist 9. júní og telst bindandi.


