
Flugfreyjufélag Íslands boðar félagsfólk til félagsfundar mánudaginn 12. október í Herðubreið að Stórhöfða 29. Húsið opnar kl. 17:00 og er gengið inn um inngang G, bak við hús.
Dagskráin hefst kl. 17:30 með erindi Gylfa Dalmanns um sérstöðu flugstéttanna, vinnustaðamenningu og verkfallsréttinn. Að erindinu loknu, kl. 18:30, verður boðið upp á súpu og brauð.
Sjálfur félagsfundurinn hefst kl. 19:00 og stendur til kl. 20:00. Þar verður farið yfir stöðu samningaviðræðna og rætt um meðal annars hlutastörf, kombófyrirkomulag og fastráðningar.
Markmiðið er að eiga opið og afslappað samtal um þau mál sem skipta félagsfólk FFÍ máli.
Félagsfólk er hvatt til að skrá sig og mæta á fundinn.


