Stuðningsyfirlýsing við FVFÍ

Eftir september 22, 2026Fréttir

Flugfreyjufélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við flugvirkja í þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir og við boðaðar verkfallsaðgerðir FVFÍ.

Flugvirkjar gegna lykilhlutverki í íslenskum flugsamgöngum og tryggja öryggi farþega og áhafna. Störf þeirra eru ábyrgðarmikil og oft við krefjandi aðstæður þar sem fagmennska, þekking og reynsla skipta höfuðmáli.

FFÍ stendur með FVFÍ og styður rétt þeirra til að fylgja eftir kröfum sínum með þeim aðferðum sem félagsfólk þeirra hefur samþykkt og gilda á íslenskum vinnumarkaði.

Samstaða stéttarfélaga og félagsfólks er mikilvæg þegar tekist er á um kjör og réttindi. FFÍ telur mikilvægt að réttur launafólks til að beita verkfalli sé virtur og að kjaradeilur séu leystar með sanngjörnum og málefnalegum hætti við samningaborðið.

Flugfreyjufélag Íslands hvetur samningsaðila til að nýta þann skamma tíma sem er til stefnu til að ná samkomulagi svo að ekki komi til verkfalls né að beitt verði lagasetningu á verkfall þeirra.

f.h. Flugfreyjufélags Íslands

Berglind Kristófersdóttir, formaður

Ingunn Kristín Ólafsdóttir, varaformaður

Share