
Stjórn og trúnaðarráð FFÍ hittist í dag á starfsdegi stjórnar þar sem við lögðum línur með verkefni og nefndarstarf vetrarins. Viðburðaríkur vetur er framundan hjá okkur en efst á baugi er auðvitað að taka upp samningaviðræður við Icelandair eftir sumarleyfi.
Samninganefndir FFÍ og Icelandair eru með skipulagða þétta fundarsetu í næstu viku þar sem haldið verður áfram vinnu sem miðast að því að ná góðum samningi fyrir okkar félagsfólk en samningar hafa nú verið lausir í tæpt ár.
Í gær bárust okkur öllum fréttir að gengið hefði verið frá kaupum Icelandair á 49% hlut í flugrekstrarleyfi á Möltu. Við höfum á þessum tímapunkti ekki frekari upplýsingar til ykkar en munum funda með forsvarsmönnum Icelandair vegna þessara fyrirætlana á næstu dögum og getum í kjölfarið vonandi upplýst ykkur betur.
Við teljum mikilvægt að halda félagsfund sem fyrst þar sem við getum upplýst ykkur um stöðu samningaviðræðna, sem ætti að vera skýrari mynd á eftir næstu viku og rætt önnur mál sem hvíla á okkur. Við munum setja inn dagsetningu þar að lútandi við fyrsta tækifæri.
Stjórn og trúnaðarráð FFÍ


