
Flugfreyjufélag Íslands hefur tekið í notkun nýtt þjónustukerfi, TÓTAL, sérhannað kerfi fyrir verkalýðsfélög, sem mun auðvelda aðgang að þjónustu félagsins. Um er að ræða sama kerfi og Fagfélögin tóku upp í ársbyrjun 2025 og hafa notað við góðar undirtektir.
Í kerfinu eru „Mínar síður“ þar sem meðal annars verður hægt að:
- Sækja um styrki í Sjúkra- og Starfsmenntasjóð
- Sækja um sjúkradagpeninga
- Bóka orlofshús*
- Nálgast aðra þjónustu og upplýsingar frá félaginu
*ATH opnað hefur verið fyrir bókanir í orlofshús FFÍ fyrir tímabilið 10. september 2026 til 4. janúar 2027. Punktaúthlutun á ekki við um tímabilið.
Innleiðing nýs kerfis er fyrsta skref í að bæta þjónustu við félagsfólk. Eins og oft gerist við upphaf notkunar nýrra kerfa má búast við einhverjum hnökrum fyrst um sinn og biðjum við ykkur um þolinmæði á meðan við fínstillum kerfið.
Vegna yfirfærslunnar verður tímabundið lokað fyrir umsóknir í FFÍ appi félagsins og allar nýjar umsóknir og bókanir orlofshúsa skulu berast í gegnum nýja kerfið „Mínar síður“. Innskráning er með rafrænum skilríkjum. FFÍ-appið verður þó áfram opið og þar verða allar upplýsingar og annað efni áfram aðgengilegt.
Notendur eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningarnar sem sjá má hér að neðan. Ekki hika við að hafa samband við FFÍ í síma 5614307 og/eða Fagfélögin í síma 5400100, ef þið þurfið aðstoð.
Við þökkum ykkur fyrir skilninginn og hlökkum til að bjóða ykkur betri og einfaldari þjónustu í gegnum „Mínar síður“.


