
Aðalfundur Flugfreyjufélags Íslands 2026 verður fimmtudaginn 07. maí og hefst kl. 18:00.
Vinsamlegast skráið mætingu með tölvupósti á [email protected] fyrir kl. 12:00 þri 05. maí 2026 eða með skráningu á viðburðinn í FFÍ appinu.
Fundurinn verður á Stórhöfða 29–31, fundarsalur Herðubreið, inngangur g fyrir neðan hús.
Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki.
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið ár
- Endurskoðaður ársreikningur félagsins lagður fram til afgreiðslu
- Stjórnarkjör hluta stjórnar; þrír meðstjórnendur og einn í varastjórn
- Mögulegar laga- og reglugerðarbreytingar a) Engar tillögur að lagabreytingum liggja fyrir að þessu sinni b) Breytingatillögur á reglugerð sjúkrasjóðs birtar í FFÍ appinu
- Önnur mál
Ársreikningur félagsins hefur verið birtur í FFÍ appinu og liggur hann einnig frammi á skrifstofu félagsins.
Kær kveðja,
Stjórn FFÍ


