Allt virkt félagsfólk FFÍ eiga rétt á dvöl í orlofshúsum FFÍ. Virkir félagar eru þeir sem greitt hefur verið af í orlofssjóð í a.m.k. 3 mánuði. Hjá lausráðnum endurnýjast rétturinn aftur eftir leyfi eftir 1 mánuð.
Aðeins félagsfólk FFÍ mega leigja og framleiga er bönnuð, þar með talið lán til fjölskyldu og vina. Með því að samþykkja leigusamninginn gengst félagsfólk undir þær kvaðir sem honum fylgja varðandi umgengni og þrif.
Allt fastráðið félagsfólk fær 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð í fastráðningu, þ.e. 12 punkta á ári. Punktaþak er 400 punktar.
Það félagsfólk sem lætur af störfum 60 ára eða eldra og hefur starfað að lágmarki í 20 ár, heldur réttindum sínum í 10 ár eftir starfslok.
Sumartímabil eru í punktaúthlutun og eru þau tímabil auglýst sérstaklega. Um önnur tímabil gildir „Fyrstur kemur – fyrstur fær“. Við punktaúthlutun er alfarið farið eftir punktastöðu og þá gengur fastráðið félagsfólk fyrir.