
Takk fyrir komuna á aðalfundinn
Aðalfundur Flugfreyjufélags Íslands var haldinn 08. maí sl. og er öllu félagsfólki sem gaf sér tíma til að mæta þakkað kærlega fyrr komuna.
Formaður, þrír stjórnarmenn og einn til vara fyrir starfstímabilið 2025-2027 voru sjálfkjörin á aðalfundinum þar sem ekki bárust mótframboð.
Berglind Kristófersdóttir er sjálfkjörin sem formaður FFÍ. Eyrún Björk Jóhannsdóttir, Ingunn Kristín Ólafsdóttir og Kristján Geir Guðmundsson voru sjálfkjörin í stjórn FFÍ og Karen Margrét Bjarnadóttir í varastjórn.
Samkvæmt lögum félagsins skiptir stjórn með sér verkum og hefur eftirfarandi skipting verið samþykkt af stjórn:
Ingunn Kristín Ólafsdóttir er varaformaður, Eyrún Björk Jóhannsdóttir er ritari stjórnar og mun sinna alþjóðamálum félagsins sem formaður alþjóðanefndar, Þóra Sigríður Guðmundsdóttir er gjaldkeri stjórnar.
Gerðar hafa verið breytingar á hluta stjórnar fyrir starfstímabilið 2024-2026, en Ásdís Anna Sverrisdóttir (varastjórn) hefur tekið sæti sem aðalmaður í stjórn í stað Sigríðar Ástu Árnadóttur. Við þökkum Sigríði Ástu innilega fyrir allt hennar framlag til félagsins síðustu áratugina og óskum henni alls hins besta.
Aðrir aðalmenn í stjórn 2024-2026 eru Þóra Sigríður Guðmundsdóttir og Guðný Björg Hjálmarsdóttir.
Töluverðar breytingar urðu á trúnaðarráði og sitja eftirtaldir aðilar í trúnaðarráði félagsins 2025-2027: Anna Rún Halldórsdóttir, Bryndís Grétarsdóttir, Guðrún Dóra Steindórsdóttir, Henrietta Guðrún Gísladóttir, Hildur Bára Leifsdóttir, Ingileif Jóhannesdóttir, Irmý Ósk Róbertsdóttir, Karen Inga Einarsdóttir, Ólafur Alex Kúld Kristinsson, Pálína Agnes Kristinsdóttir, Rannveig Klara Matthíasdóttir, Sara Líf Guðjónsdóttir, Sigríður Jónasdóttir, Sigrún H. Kristjánsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Þorkell Magnússon.
Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa í trúnaðarráð FFÍ og sendum um leið okkar bestu þakkir til allra þeirra sem létu af störfum í trúnaðarráði.
Orlofsnefnd félagsins er nú skipuð eftirfarandi aðilum:
Daníela Björgvinsdóttir
Steinunn María Sigurðardóttir
Ingibjörg Þorvaldsdóttir
Sigríður Herdís Ásgeirsdóttir
Kjörstjórn félagsins er skipuð eftirfarandi aðilum:
Herdís Sif Þorvaldsdóttir
Heiðrún Sigvaldadóttir
Arnrún Lea Einarsdóttir
Sigrún Birna Norðfjörð – til vara
Hreinn Skagfjörð Pálsson – til vara
Félagslegir skoðunarmenn er skipuð eftirfarandi aðilum:
Ingibjörg Matthíasdóttir
Aldís Jana Arnarsdóttir
Eva María Hilmarsdóttir – til vara
Við óskum þeim öllum til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins til næstu ára.
Sigríður Ása Harðardóttir hefur ákveðið að láta af störfum alþjóðanefndar eftir júní mánuð og þökkum við henni jafnframt kærlega fyrir hennar störf í þágu félagsins til fjölda ára. Þá hefur Fanney Harðardóttir látið af störfum fyrir orlofsnefnd félagsins til margra ára og þökkum við henni margfalt fyrir hennar óeigingjarna starf í þágu orlofsnefndar.
Unnið er að því að uppfæra viðeigandi gögn í FFÍ appinu og á heimasíðu félagsins.
Ársreikningur félagsins var kynntur og lagður fram til afgreiðslu á fundinum án athugasemda.
Á aðalfundinum voru samþykktar nokkrar breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs en beðið er samþykkis ASÍ áður en breytingarnar taka formlega gildi og verða kynntar sérstaklega á næstunni.
Stjórn og starfsfólk FFÍ