Reglugerð Orlofssjóðs FFÍ
Sjóðurinn heitir Orlofsheimilasjóður Flugfreyjufélag Íslands
Tilgangur sjóðsins og hlutverk sjóðsstjórnar er:
- Að kaupa orlofsheimili einn sér eða ásamt öðrum, fjármagna byggingu þeirra, viðhald og rekstur.
- Fjárfesting og eignasala, annað en eðlilegt viðhald eigna, er þó ekki heimil nema að fengnu samþykki stjórnar FFÍ.
- Heimilt er orlofssjóði að taka á leigu orlofshús og endurleigja félagsmönnum.
- Annast úthlutun orlofshúsa FFÍ samkvæmt reglum sem stjórnin setur sér.
- Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekanda til sjóðsins eins og semst um á hverjum tíma, leigutekjur af orlofsheimilum, vaxtatekjur og önnur framlög er til falla.
- Stjórn sjóðsins skipa 3 menn, sem kjörnir eru á aðalfundi ár hvert. Í stjórn skulu vera skipaður formaður auk meðstjórnenda. Stjórnin skal halda gerðabók um fundi sína og störf sín.
- Allur kostnaður af starfi stjórnar og starfsemi sjóðsins greiðist úr orlofssjóði.
- Sjóðurinn er í eigu FFÍ. Reikningar hans fylgja reikningum FFÍ, endurskoðaðir af endurskoðendum FFÍ og lagðir fyrir á aðalfundi félagsins.
- Allir félagsmenn FFÍ hafa rétt til að njóta þjónustu sjóðsins, einnig þeir félagsmenn sem láta af störfum 60 ára eða eldri, í 10 ár eftir starfslok.
- Breytingar á reglugerð þessari má aðeins gera á aðalfundi félagsins með meirihluta atkvæða.
Reglugerð þessi þannig samþykkt á aðalfundi félagsins 13. maí 2015