Almennar upplýsingar

Verðskrá orlofshúsa FFÍ:
Leiga staka virka daga: Helgarleiga:  Vikuleiga:
mán-fös fös-mán (föst helgarleiga) mán-mán
kr. 5.000* kr. 30.000 kr. 50.000
*Lágmarksgjald fyrir einn dag er 20.000.- kr. vegna 15.000.- kr. startgjalds
Tímabil:
Vetur/vor úthlutun: Sumarúthlutun: Haust/vetur úthlutun:

Tímabil jan-maí

Við bókanir gildir reglan:
„Fyrstur kemur fyrstur fær“

Tímabil maí-sept.

Punktastaða ræður úthlutun og fastráðnir hafa forgang.

Tímabil sept-jan

Við bókanir gildir reglan:
„Fyrstur kemur fyrstur fær“
Nákvæm tímasetning um hvenær opnað er fyrir bókanir er auglýst sérstaklega fyrir hvert tímabil*

_________________________________

*Vetur/vor úthlutun: í október
*Sumarúthlutun: í mars
*Haust/vetur úthlutun: í ágúst

Flestar breytingar og afbókanir getur leigutaki sjálfur gert inni á MÍNUM SÍÐUM.

Sé þörf á aðstoð er hægt að senda tölvupóst á [email protected] með beiðni um breytingu eða afbókun.

Leigjandi getur afbókað hús allt að þremur vikum fyrir dvöl gegn fullri endurgreiðslu að frádregnu bókunargjaldi sem er kr. 5000. Endurgreitt er inná það kort sem leigjandi greiddi með.

Eigi afbókun sér stað með styttri fyrirvara er leiga endurgreidd gegn því að orlofseign leigist aftur.

  • Afbókun vegna veðurs eða ófærðar
    • Forsenda þess að fá endurgreitt vegna veðurs er að Veðurstofan hafi gefið út viðvörun eða vegir lokaðir vegna ófærðar. Endurgreitt er að fullu að frádregnu bókunargjaldi kr. 5.000.
  • Afbókun vegna veikinda
    • Leigutaki þarf að framvísa læknisvottorði. Endurgreitt er að fullu að frádregnu bókunargjaldi kr. 5.000
  • Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutími hefst.

1. Allt virkt félagsfólk FFÍ eiga rétt á dvöl í orlofshúsum FFÍ. Virkir félagar eru þeir sem greitt hefur verið af í orlofssjóð í a.m.k. 3 mánuði. Hjá lausráðnum endurnýjast rétturinn aftur eftir leyfi eftir 1 mánuð.

2. Aðeins félagsfólk FFÍ mega leigja og framleiga er bönnuð, þar með talið lán til fjölskyldu og vina. Með því að samþykkja leigusamninginn gengst félagsfólk undir þær kvaðir sem honum fylgja varðandi umgengni og þrif.

3. Allt fastráðið félagsfólk fær 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð í fastráðningu, þ.e. 12 punkta á ári. Punktaþak er 400 punktar.

4. Það félagsfólk sem lætur af störfum 60 ára eða eldra og hefur starfað að lágmarki í 20 ár, heldur réttindum sínum í 10 ár eftir starfslok.

5. Sumartímabil eru í punktaúthlutun og eru þau tímabil auglýst sérstaklega. Um önnur tímabil gildir „Fyrstur kemur – fyrstur fær“. Við punktaúthlutun er alfarið farið eftir punktastöðu og þá gengur fastráðið félagsfólk fyrir. Ef punktastaða er jöfn er farið eftir starfsaldri við úthlutun og svo lífaldri.

Er eitthvað athugavert við orlofseignina? Við yrðum þakklát fyrir að fá upplýsingar um það til að geta brugðist við!

Tekið er við ábendingum um orlofshús FFÍ í gegnum MÍNAR SÍÐUR.

Inná Mínum síðum er smellt á hnappinn „Senda fyrirspurn á FFÍ“ og þá opnast gluggi þar sem hægt er að haka við bókun sem félagi hefur gert á orlofshúsi og koma ábendingum á framfæri um það hús.

Ef til eru myndir málinu til stuðnings er gott að taka það fram í textanum og mun FFÍ kalla eftir þeim ef þurfa þykir.