Skip to main content

Við mótmælum! Nú er nóg komið!

Eftir september 10, 2024Fréttir

Nú er nóg komið og tímabært að stjórnvöld axli ábyrgð á því síversnandi efnahagsástandi sem birtist landsmönnum. Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila og ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna.

Á sama tíma hafa stjórnvöld brugðist hlutverki sínu með sinnuleysi í þessu helsta viðfangsefni sínu undanfarin ár.

Við sættum okkur ekki við aðgerðaleysið – stjórnvöld verða að sýna samstöðu með heimilum í landinu í verki! Strax!

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli þann 10. september, kl. 16:00.

Nú er nóg komið!