MINNINGARSJÓÐUR MARÍU JÓNSDÓTTUR
Minningarsjóður Maríu Jónsdóttur flugfreyju var stofnaður 1. nóvember 1963, daginn sem hún hefði orðið 31 árs. María var flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands frá 1956 og hafði verið formaður Flugfreyjufélags Íslands síðustu árin. Hún fórst í flugslysi í aðflugi að Fornebu flugvelli í Osló, á páskadagsmorgun árið 1963. Allir sem um borð voru, 12 að tölu, fórust.
Minningarsjóðurinn var stofnaður af foreldrum Maríu. Hugsun þeirra að baki stofnun sjóðsins var annars vegar að halda minningu dóttur sinnar lifandi en þó fyrst og fremst að til væri sjóður sem styrkti flugfreyjur/flugþjóna eða börn þeirra ef til annars flugslyss kæmi. Einnig yrði hægt að sækja í sjóðinn greiðslur vegna langvarandi veikinda flugfreyja/flugþjóna og barna þeirra.
Tekjur sjóðsins eru nær eingöngu af sölu minningarkorta en auk þess hafa félagsmenn FFÍ styrkt sjóðinn með árlegu framlagi sínu.
Minningarsjóður Maríu Jónsdóttur mun vera eini minningarsjóðurinn hjá stéttarfélögum innan flugsins.
Stjórn sjóðsins skipa:
Berglind Kristófersdóttir, formaður FFÍ
Ástríður Helga Ingólfsdóttir, gjaldkeri FFÍ
Sigurlaug Halldórsdóttir, flugfreyja
Minningarkortin fást hjá eftirtöldum aðilum:
Sigurlaugu Halldórsdóttur – This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Á skrifstofu Flugfreyjufélags Íslands sími 561-4307 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.